Þríhyrninga-ferninga-dúkur

Í fyrra hélt ég lítið örnámskeið hjá Íslenska bútasaumsfélaginu í gerð auðveldra þríhyrninga-ferninga. Ræmur eru saumaðar saman, síðan pressaðar í sundur og svo er skorið. Þannig fást 100% réttir þríhyrningaferningar. Til að sýna þetta betur saumaði ég þennan dúk (snið frá Modabakeshop). Í honum eru 400 þríhyrninga-ferningar.

Í möööörg ár hefur mig langað til að ná fjaðra-stungu-tækninni. Um síðustu helgi ákvað ég að ég að nú skyldi það takast. Ég eyddi tveimur dögum í að teikna fjaðrir á blað og svo lét ég bara vaða. Ég er svakalega ánægð með árangurinn og mikið rosalega var þetta skemmtilegt!! Ætli ég verði ekki með fjaðrir í öðru hverju verkefni núna… svona eins og þegar ég náði tökunum á krákustígunum!! 🙂

Comments

  1. Langt síðan ég hef “heimsótt” þig 🙁 Ætla að rúlla í gegn og sjá hvað þú hefur verið að bralla. Ég var að benda einni frá USA á lopapeysuteppið þitt, hana vantar eitthvað íslenskt. Þessi dúkur er svakalega fallegur, litirnir eru æði.

  2. Wow…beautiful! I love it!

join the conversation

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.