Lítil lopapeysa á Dag Frey

DSC_4653

Litla peysan er tilbúin og Dagur tekur sig aldeilis vel út í henni. Peysan er prjónuð fyrir ca 12 mánaða en ef við brettum upp ermar má vel byrja að nota  hana strax. Ég fór í Litlu prjónabúðina og fékk tölurnar þar. Þær koma ótrúlega vel út og gera peysuna svo þjóðlega eins og hún sagði eigandinn í búðinni – ótrúleg smekkkona þar á ferð! 🙂

DSC_4657

DSC_4677

Snið/mynstur: snið upp úr sjálfri mér en notaðist við þetta mynstur – sendið mér línu ef þið viljið vita hvaða umferðir ég tók út
Stærð: ca 12 mánaða
Garn: einfaldur plötulopi frá Ístex
Prjónar: 5,5 mm
Tölur: Litla prjónabúðin

DSC_4655

DSC_4663

DSC_4671

DSC_4659

Comments

  1. Þú ert svo mikill snillingur Berglind mín – mikið er peysan falleg hjá þér og svo
    er það þessi litli snáði …….. ég er að missa mig yfir þessari fallegu fyrirsætu 😀

  2. kemur rosa vel út tilbúna peysan, og fyrirsætan nátturulega algjört krútt

  3. Þetta er algerlega meiriháttar flott peysa og dí hann er æðislegur 🙂

  4. Vá hvað peysan er flott! Og snáðinn er algjör dúlla 🙂
    Ég væri alveg til í að fá að vita hvaða umferðum þú slepptir…

Trackbacks

  1. […] höndum – ég er búin að vera að prjóna peysu á Davíð (bráðum 10), alveg eins og peysuna hans Dags litla. Davíð vildi að hann og litli bróðir hans ættu eins peysur […]

  2. […] var búin að setja inn myndir hérna af Degi litla í peysunni sinni en síðan hófst ég handa við peysuna hans Davíðs, enda langaði hann svo mikið til […]

Leave a Reply to Bryndís Cancel reply

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.